Haustönnin í Edinborgarhúsinu

Haustönnin í Edinborgarhúsinu er farin af stað með krafti! Við mælum með því að skrá sig á póstlistann okkar og fylgja okkur á samfélagsmiðlum (Facebook og Instagram) til að missa ekki af neinu!

Tónlistarkennsla er hafin hjá Margréti í LRÓ, þar sem kennt er á píanó.

Leiklistarhópur Halldóru verður með starfsemi sína í húsinu í vetur og nú í samstarfi við LRÓ. Boðið er upp á leiklistarkennslu og tíma í dansi og hreyfingu. Enn eru einhver laus pláss í yngri hópinn í leiklist og í tíma í dansi og hreyfingu, nánari upplýsingar eru á www.doruleiklist.com.

Sex vikna myndlistarnámskeið fyrir unglinga, 12-16 ára, verður í boði frá 15. september. Kennari á námskeiðinu er Stefania Zagan. Stefania hefur mikla reynslu af listkennslu auk þess að vera með gráðu í listasögu og með kennararéttindi.

Áætlað er að vera með sex vikna myndlistarnámskeið fyrir yngri börn síðar á haustönn og verður það auglýst sérstaklega.

Viðburðaröðin Skapandi laugardagar verður á dagskrá flesta laugardaga í vetur, þar sem börn og fjölskyldur geta leyft sköpunarkraftinum að skína, undir handleiðslu listafólks. Verkefnið fékk styrk úr Barnamenningarsjóði 2026. Fyrstu viðburðir haustsins eru komnir í dagatalið:

Boðið verður upp á Magic the Gathering-spilakvöld tvisvar í mánuði, í samstarfi við Fjölsmiðjuna.

Fyrir utan allt ofantalið verða að sjálfsögðu tónleikar, listviðburðir og ýmislegt fleira spennandi í gangi í Edinborgarhúsinu í allan vetur. Þau sem hafa áhuga á að setja upp viðburði í húsinu geta haft samband í gegnum edinborg@edinborg.is.

Next
Next

Rekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu