Back to All Events

LRÓ – Myndlistarnámskeið fyrir unglinga


Menningarmiðstöðin Edinborg og LRÓ standa fyrir sex vikna myndlistarnámskeiði fyrir unglinga, 12-16 ára, í september og október.

Skráning fer fram í gegnum Abler. Hægt er að nota frístundastyrk Ísafjarðarbæjar til að greiða fyrir námskeiðið.

Á námskeiðinu verður snert á flestum öngum myndlistarinnar, svo sem teikningu, málun, klippimyndagerð, ljósmyndun og leirvinnu.

Markmiðið er að bjóða upp á öruggt og styðjandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á sköpunarferlið fremur en lokaafurðina. Nemendur læra að vinna með mismunandi sköpunarform og efnivið á sama tíma og lögð er áhersla á að efla listrænt sjálfstraust, sköpunargáfu og samskiptahæfni. Þannig gefst nemendum tækifæri til að uppgötva og tjá eigin styrkleika í gegnum listina.

Námskeiðið samanstendur af sex tveggja tíma lotum, kennt er tvisvar í viku, svo er viku hlé þar sem nemendur vinna heimaverkefni.

Dagsetningar kennslu:

Kennsla fer fram kl. 18-20.

Þriðjudagur 15. september
Fimmtudagur 17. september

Þriðjudagur 29. september
Fimmtudagur 1. október

Þriðjudagur 13. október
Miðvikudagur 14. október

Kennari er Stefania Zagan. Stefania er menntuð í myndlist auk þess að vera með háskólagráðu í listasögu og kennsluréttindi.

Previous
Previous
15 September

SJÓN í Edinborgarhúsinu

Next
Next
19 September

Skapandi laugardagar: Söngstund fyrir yngstu börnin 19. september