Um Edinborgarhúsið
Edinborgarhúsið er lifandi menningarhús í hjarta Ísafjarðar, rekið af einkahlutafélaginu Edinborgarhúsið ehf.
Í húsinu fara fram tónleikar, listsýningar, leiksýningar og aðrir viðburðir allt árið um kring. Salir hússins eru leigðir út fyrir viðburði af öllum toga.
Í Edinborgarhúsinu er einnig veitingastaðurinn Edinborg Bístró og ferðaskrifstofan Vesturferðir.
