Edinborgarhúsið býður upp á aðstöðu fyrir alls kyns viðburði og mannfagnaði, stóra sem smáa.

Bókanir og fyrirspurnir má senda í tölvupósti á edinborg@edinborg.is.

Edinborgarsalur

  • Stærð: 221 fermetrar

  • Aðgengi fyrir hjólastóla úr Bryggjusal

  • Hljóðkerfi, lýsing og skjávarpi

  • Baksviðsaðstaða

Edinborgarsalur er aðalsalur hússins og er á jarðhæð.

Salurinn býður upp á góða aðstöðu fyrir leiksýningar, tónleika,
ráðstefnur, fundi, málþing, kaupstefnur og fleira.

Hægt er að sameina Edinborgarsal við hliðarsal  (Bryggjusal)  sem er 119 m2. 

Edinborgarsalur, aðalsalur Edinborgarhússins
Edinborgarsalur, aðalsalur Edinborgarhússins

Bryggjusalur

  • Stærð: 119 fermetrar

  • Aðgengi fyrir hjólastóla

  • Tjald og færanlegur skjávarpi

  • Baksviðsaðstaða

Bryggjusalur er bjartur og rúmgóður salur á jarðhæð.

Salurinn tekur um 100 manns við borð og er tilvalinn fyrir meðalstóra
fundi og mannamót. Salurinn hentar einnig vel fyrir listasýningar.

Hægt er að sameina Bryggjusal við aðalsal (Edinborgarsal)  sem er 221 m2. 

Bryggjusalur í Edinborgarhúsinu
Bryggjusalur í Edinborgarhúsinu

Rögnvaldarsalur

  • Stærð: 70 fermetrar

  • Aðgengi fyrir hjólastóla með lyftu

  • Tjald og færanlegur skjávarpi

  • Eldhús

Rögnvaldarsalur er á 2. hæð hússins.

Salurinn hentar fyrir minni fundi, veislur og aðrar samkomur.

Inn af salnum eru tvö herbergi (55 og 45 m2) sem eru nýtt sem kennsluherbergi LRÓ. Í öðru þeirra er lítið eldhús með uppþvottavél, eldavél með ofni og ísskáp. 

Rögnvaldarsalur í Edinborgarhúsinu