Stefna fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg

Ísafirði

2025-2030

  • Edinborgarhúsið á Ísafirði er menningarmiðstöð Vestfjarða.

    Menningarmiðstöðin opnaði formlega á hundrað ára afmæli hússins árið 2007 en starfsemi á vegum Litla leikklúbbsins, Myndlistarfélags Ísafjarðar og Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar hófst í byggingunni töluvert fyrr á meðan endurbætur voru enn í gangi.

    Menningarmiðstöðin Edinborg stendur á tímamótum um þessar mundir. Árið 2019 var ljóst að óbreyttar rekstraraðstæður gengju ekki upp svo það mætti standa undir nafni sem menningarhús. Allt frá þeim tíma hefur stjórn hússins unnið að endurskipulagningu rekstursins og átt í viðræðum við sveitarfélag og ríki um rekstrarframlög til að húsið geti staðið undir nafni.

    Í júlí 2023 tilkynntu eigendur Skógs ehf. um peningagjöf til Edinborgarhússins ehf. að upphæð 70 m.kr. í minningu Jóns Sigurpálssonar, fyrrverandi stjórnarformanns og eins af frumkvöðlum menningarmiðstöðvarinnar.

    Stjórn hússins lítur á ráðstöfun gjafarinnar sem mikilvægt ábyrgðarhlutverk og leggur áherslu á að féð nýtist með þeim hætti að það styrki hlutverk Edinborgarhússins til lengri tíma og efli menningarlíf á Vestfjörðum. Með stefnunni er dregin upp skýr framtíðarsýn fyrir Edinborgarhúsið, verkefnum forgangsraðað og afmarkaðar áherslur í listrænu starfi, samfélagslegu hlutverki og rekstri hússins. Stefnan byggir á ítarlegu samráðsferli þar sem breiður hópur hagaðila hefur haft aðkomu.

  • Edinborgarhúsið á Ísafirði var reist árið 1907 sem verslunar- og atvinnuhúsnæði og hefur gegnt margvíslegu hlutverki í gegnum tíðina. Húsið er teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni, fyrsta Íslendingnum sem lærði byggingarlist. Undir lok 20. aldar stóð húsið autt en að frumkvæði fjölda ólíkra aðila úr grasrót lista og menningar á Ísafirði var hlutafélagið Edinborgarhúsið ehf. stofnað og festi það kaup á húsinu árið 1992. Í kjölfarið var ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu sem að miklu leyti voru unnar í sjálfboðavinnu. Frá árinu 2007 hefur húsið verið rekið sem lifandi og sjálfstætt starfandi menningarmiðstöð sem þjónar samfélaginu á Vestfjörðum.

    Einkahlutafélagið Edinborgarhúsið ehf. rekur húsið á grundvelli skýrra ákvæða í stofnsamþykktum um óhagnaðardrifinn rekstur og hefur það hlutverk að reka menningarmiðstöð í húseigninni. Stærstu eigendur félagsins eru Litli leikklúbburinn og Myndlistarfélag Ísafjarðar en meðal hluthafa eru einnig einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki.

    Eitt af aðalhlutverkum menningarmiðstöðvarinnar er að stuðla að fjölbreyttu framboði á list- og menningarviðburðum og ár hvert eru fjölmargir ólíkir viðburðir í mismunandi sölum hússins. Þótt tónlist og sviðslistir hafi verið mest áberandi í dagskránni undanfarin ár er flestum listgreinum gerð skil.

    Í Edinborgarhúsinu er starfræktur Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar. Skólinn var stofnaður árið 1993 í tengslum við Edinborgarhúsið og hóf starfsemi í húsinu árið 1999. Þótt skólinn hafi á undanförnum árum fyrst og fremst sinnt tónlistarkennslu á hann rætur í fjölbreyttu listnámi en undir hans hatti var um tíma blómlegur dansskóli og þar hefur einnig reglulega verið boðið upp á kennslu í myndlist. Húsið hýsir einnig veitingastað og ferðaskrifstofu.

    Edinborgarhúsið var endurbyggt af eigendum þess, sem lögðu á sínum tíma til húseignina sjálfa auk mikillar sjálfboðavinnu. Fjárframlag til endurbyggingarinnar kom frá ríkinu, 106 m.kr. og Ísafjarðarbæ 70 m.kr. samkvæmt samningi árið 2006. Sá samningur fól ekki í sér rekstrarframlag.

    Frá opnun hússins árið 2007 hefur rekstur menningarhússins því að mestu verið fjármagnaður með sjálfsaflafé. Þær tekjur hafa einkum komið í gegnum húsaleigu, bæði til skamms og langs tíma og styrkjum úr opinberum sjóðum og þá fyrst og fremst Uppbyggingarsjóði Vestfjarða (áður Menningarráði Vestfjarða).

    Árið 2023 var gerður tíu ára samningur við Ísafjarðarbæ um niðurfellingu fasteignagjalda og árið 2024 var gerður tveggja ára samningur við menningarmálaráðuneytið um rekstrarstyrk. Í rúman áratug hefur þó verið ljóst að sjálfsaflafé eitt og sér dugar ekki til að húsið geti staðið undir hlutverki sínu sem menningarhús. Í kjölfar viðræðna við ríki og sveitarfélag um þessa stöðu hafa tímabundnir rekstrarstyrkir tvívegis verið veittir, annars vegar árið 2020 frá ríki og sveitarfélagi og hins vegar árið 2022 frá sveitarfélagi. Rekstrargrundvöllur hússins hefur því að verulegu leyti byggst á sjálfboðavinnu og samblandi sjálfsaflafjár og tímabundins opinbers stuðnings, með þeim áskorunum sem slíkt fyrirkomulag felur í sér hvað varðar fyrirsjáanleika í rekstri.

  • Stjórn Edinborgarhússins og þáverandi starfmaður þess, Kristinn Gauti Einarsson, vann haustið 2024 að hagaðilagreiningu og gagnaöflun til undirbúnings stefnumótunarvinnu sem þótti orðið tímabært að ráðast í. Einnig vann Anna Sigríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu, úttekt á starfsemi hússins og snertiflötum þess við opinberar menningarstefnur, í samstarfi við stjórn. Þá var einnig útbúið rekstrarlíkan fyrir húsið sem var unnið af Magnúsi Einarssyni, fjármálaráðgjafa. Snemma í maí 2025 var Vigdís Jakobsdóttir, menningarráðgjafi, ráðin til þess að leiða framhald stefnumótunarferlisins í samstarfi við stjórn. Frá upphafi var ákveðið að vinna stefnuna í nánu samstarfi og samtali við sem breiðastan hóp almennings og hagaðila.

    Ferlið hófst á öflun gagna, greiningu hagaðila og samtölum stjórnar og Vigdísar. Í lok maí var blásið til opins fundar með öllum helstu hagaðilum af svæðinu og mættu 54 manns á fundinn. Um miðjan ágúst var aftur tekin skorpa og Vigdís fundaði þá bæði með einstaklingum sem þekkja húsið vel, og leigjendum/ notendum hússins. Einnig var haldinn samráðsfundur með starfandi listafólki á svæðinu föstudaginn 15. ágúst. Síðla árs voru fundir með bæjarstjóra og fleiri fulltrúum Ísafjarðarbæjar. Stefnan sjálf var unnin á grundvelli þessarar vinnu haustið 2025. Hún var kynnt stjórn og lykil hagaðilum í desember 2025 og endanlega samþykkt á stjórnarfundi 9. janúar 2026.

  • Edinborg er leiðandi menningarvettvangur á Vestfjörðum þar sem fjölbreytt viðburðahald og markviss listfræðsla fara saman í kröftugu samtali við nærsamfélagið. Menningarmiðstöðin skapar rými fyrir lifandi listir, samfélagslega þátttöku og aðgengilegt listnám fyrir ólíka hópa samfélagsins.

    Menningarmiðstöðin Edinborg tekur sér stöðu sem leiðandi vettvangur menningarstarfsemi á Vestfjörðum og stendur fyrir metnaðarfullu viðburðahaldi sem nær til breiðs hóps.

    AÐGERÐIR

    • Stofnaður verður 10 milljón króna sjóður í byrjun árs 2026 sem listafólk getur sótt í. Stofnfé sjóðsins er sótt úr gjöf hlutafélagsins Skógs ehf. frá árinu 2023 sem gefin var í minningu Jóns Sigurpálssonar og mun sjóðurinn bera nafn hans: Minningarsjóður Jóns Sigurpálssonar. Úthlutað verður úr sjóðnum að minnsta kosti einu sinni árlega næstu 10 ár. Mótaðar hafa verið úthlutunarreglur fyrir sjóðinn sem miða að því að efla frumsköpun og fjölbreytileika í listum á Vestfjörðum og viðburðahald í Edinborgarhúsinu. (Sjá fylgiskjal 1.)

    • Sérstök áhersla verður lögð á barna- og fjölskyldudagskrá í húsinu. Edinborgarhúsið mun fá aðrar menningarstofnanir á svæðinu til liðs við sig og standa að vikulegum menningartengdum fjölskylduviðburðum á laugardögum sem verða vel kynntir.

    • Ungu fólki (16-25 ára) verður mætt með sérstakri dagskrá sem hönnuð er í samráði og samvinnu við þau og þar sem þau fara sjálf með að minnsta kosti hluta dagskrárvaldsins.

    • Menningarmiðstöðin Edinborg stendur að viðburðum að minnsta kosti tvisvar á ári þar sem listafólki sem búsett er á svæðinu er boðið upp á fræðslu, samtal og/eða tækifæri til að tengjast innbyrðis.

    • Veturinn 2025/2026 verður staðið að örsýningaröð á göngum hússins þar sem auglýst er eftir listafólki af svæðinu til að sýna verk sín. Verkefnið verður keyrt sem tilraunaverkefni og endurtekið að ári ef vel tekst til.

    • Myndlistarsýningar á sumrin verða festar í sessi og umgjörð um þær mótuð til framtíðar.

    • Áhersla verður lögð á að viðhalda og efla reglulega viðburði sem eru rótgrónir í starfsemi hússins og menningarlífinu á Vestfjörðum, svo sem bókmenntadagskrár, leiksýningar, tónleikaraðir, samstarf við hátíðir o.fl.

    Menningarmiðstöðin Edinborg er lifandi og aðgengilegur vettvangur listnáms á Vestfjörðum.

    AÐGERÐIR

    • Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar verður áfram rekinn í húsinu, þar sem hann hefur verið starfræktur frá upphafi. Samstarf milli skólans og Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar verður eflt. Í nánu samráði við skólann verða jafnframt skoðaðar mögulegar leiðir til aukins rekstrarlegs og faglegs samstarfs.

    • Dansnám verður endurvakið í húsinu í skrefum. Byrjað verður á styttri námskeiðum vorið 2026 og leitað leiða til að ráða danskennara til þess að leiðbeina í samfelldara námi veturinn 2027/2028.

    • Tónlistarnám við Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar verður áfram kjarninn í starfsemi skólans en jafnframt verður leitað leiða til að efla það og þróa í samhengi við annað listnám.

    • Myndlistarkennsla verður efld. Boðið veður upp á stutt námskeið á vorönn 2026. Lengri námskeið verða skipulögð og kynnt fyrir veturinn 2026-2027.

    • Leiklistarnámskeið verða fastur liður í Edinborgarhúsinu.

    • Leitað verður leiða til að tryggja að námskeið og annað skipulagt listnám í húsinu falli undir reglur sveitarfélaga um frístundastyrki og auki þannig aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttu listnámi.

    • Við uppbyggingu listnáms og -fræðslu verður markvisst unnið að því að bjóða upp á nám sem tekur mið af ólíkum þörfum og aðstæðum fjölbreyttra hópa samfélagsins.

    • Menningarmiðstöðin mun leitast eftir samstarfi við Listaháskóla Íslands og aðrar mennta- og menningarstofnanir með það að markmiði að auka framboð og fjölbreytileika listnáms á svæðinu.

    Ásýnd Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar er skýr, fagleg og aðgengileg og styður við hlutverk hússins sem leiðandi menningarvettvangs á Vestfjörðum.

    AÐGERÐIR

    • Heimasíða verður endurgerð og grafísk hönnun og ásýnd uppfærð á faglegan hátt.

    • Komið verður upp skilti og Menningarmiðstöðin Edinborg merkt á áberandi og smekklegan hátt að utan.

    • Tekið verður upp samtal við Ísafjarðarbæ um endurbætur á lóð og aðkomu að húsinu.

    • Upplýsingar um sögu hússins verða uppfærðar og hafðar sýnilegar á skjám eða skiltum á gangi.

    • Sýnileiki og virkni Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar á samfélagsmiðlum verður aukin og sérstök áhersla lögð á skilvirka miðlun upplýsinga um viðburði í húsinu.

    • Orðalag í kynningarefni verður haft eins inngildandi og mögulegt er og upplýsingum miðlað á þann hátt að sem flest geti nýtt sér þær.

    • Reglubundnum þrifum og daglegu viðhaldi í húsinu verður sinnt þannig að sómi sé að.

    • Við val á veitingaaðila og öðrum leigjendum verður tryggt að reksturinn falli vel að annarri starfsemi í húsinu og hafi ekki neikvæð áhrif á ásýnd þess.

    Menningarmiðstöðin Edinborg byggir starfsemi sína á virkri samvinnu við listafólk, menningarstofnanir og skóla á Vestfjörðum og á í samstarfi við lykil-menningarstofnanir á landsvísu.

    AÐGERÐIR

    • Frumkvæði verður haft að samstarfi við aðrar menningartengdar stofnanir og verkefni á svæðinu (svo sem Byggðasafnið, Listasafn Ísafjarðar, Bókasafn Ísafjarðar, Púkann, Við Djúpið o.fl.) um viðburðaraðir og samstarfsverkefni yfir lengri tíma. Unnið verður markvisst með þessum aðilum að þróun verkefna sem styrkja starfsemina, og leitað verður að viðeigandi fjármögnun, bæði innanlands og í gegnum erlenda sjóði.

    • Menningarmiðstöðin Edinborg mun hafa frumkvæði að samtölum um mögulegt samstarf við menntastofnanir á svæðinu (MÍ, grunnskóla, tónlistarskóla, Lýðskólann, Fræðslumiðstöð o.fl.).

    • Frumkvæði verður haft að samstarfi við ríkisreknar menningarstofnanir (svo sem Þjóðleikhús, Íslenska dansflokkinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands) um gestasýningar og viðburðahald í Edinborg.

    • Á grundvelli reynslunnar af því að keyra dagskrá í samstarfi við ungt fólk (16-25 ára) árin 2026/2027 verður skoðað hvort forsendur séu fyrir því að formgera framhald slíkrar starfsemi undir nafni ungmennahúss í samstarfi við Ísafjarðarbæ og önnur sveitarfélög á svæðinu.

    Stjórnskipulag Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar styður við vaxandi, faglega og fjölþætta starfsemi hússins.

    AÐGERÐIR

    • Fræðslu- og viðburðastjóri verður ráðinn 2026 til að efla starfsemi hússins.

    • Unnið verður að því á gildistíma stefnunnar að fjármagna stöðugildi tæknistjóra við húsið og tryggja þannig lágmarks mönnun og faglegan rekstur hússins.

    • Hluthafaskrá og samþykktir félagsins verða endurskoðaðar og uppfærðar.

    • Tekin verða markviss skref til að endurvekja og efla Myndlistarfélag Ísafjarðar og byggja upp samstarf um myndlistarsýningar í húsinu.

    • Skipað verður þriggja manna fagráð með ráðgefandi hlutverk gagnvart stjórn í dagskrárgerð. Fagráðið er valið af stjórn með það að markmiði að víkka listrænt sjónarhorn hennar með tilliti til sérþekkingar á ólíkum listgreinum og fjölbreytts bakgrunns. (Sjá nánar fylgiskjal 2.)

    Innviðir Edinborgarhússins — húsnæði, búnaður og þjónusta — styðja við starfsemi hússins og gera fjölbreytta nýtingu þess mögulega.

    AÐGERÐIR

    • Verkefnum sem varða húsnæði og tækjabúnað verður forgangsraðað og hver liður kostnaðarmetinn. Gerð verður 5 ára áætlun um viðhald og endurbætur húsnæðis og endurnýjun búnaðar. (Sjá fylgiskjal 3: Drög að áætlun um viðhald og endurbætur á Edinborgarhúsi.)

    • Við endurnýjun tækjabúnaðar verður haft að leiðarljósi að búnaðurinn sé einfaldur í notkun þar sem notendahópurinn er breiður.

    • Aðgengi að upplýsingum um aðstöðu, tækjabúnað og bókunarferli hússins verður bætt og ferlar við verkefnaval, bókanir og samstarf verða gerðir skýrir og gagnsæir.

    Rekstrargrunnur Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar verður treystur með stöðugleika og sjálfbærni að leiðarljósi.

    AÐGERÐIR

    • Unnið verður með Ísafjarðarbæ og menningarráðuneyti að samningi um rekstrarframlag til Edinborgarhússins sem endurspeglar miðlæga stöðu þess í vestfirsku menningarlífi. Til greina kemur þríhliða samningur milli allra aðila, eða tveir tvíhliða samningar. Í þessari vinnu verður jafnframt haft samráð við Vestfjarðastofu.

    • Tryggt verður að tekjustoðir verði áfram fjölbreyttar, þar með talið leigutekjur, tekjur af eigin viðburðum, námskeiðahaldi, styrkir (innlendir og erlendir) og samstarfsverkefni.

    • Gerð verður þriggja ára rekstraráætlun í byrjun árs 2026 sem uppfærð verður árlega.

    • Markvisst verður unnið að því að auka nýtingu hússins yfir árið, m.a. með fjölbreyttri dagskrá og samstarf; við ólíka aðila.

  • 1. HLUTVERK SJÓÐSINS

    Minningarsjóður Jóns Sigurpálssonar hefur það hlutverk að styðja við frumsköpun, fjölbreytni og metnaðarfullt viðburðahald í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Markmið sjóðsins er að efla listalíf á Vestfjörðum og styrkja stöðu Edinborgarhússins sem lifandi menningarvettvangs. Stjórn Edinborgarhússins ehf. fer með stjórn sjóðsins og hefur samráð við fagráð við úthlutun styrkja.

    2. UMSÆKJENDUR

    • Umsækjendur geta verið einstaklingar, hópar og félagasamtök á fagsviði lista eða aðrir aðilar sem starfa á sviði lista og menningar.

    • Sérstök áhersla er lögð á verkefni fagmenntaðs listafólks sem er búsett á Vestfjörðum eða hefur sterk tengsl við svæðið, án þess þó að úthlutun sé bundin við búsetu eða menntun umsækjenda.

    3. SKILYRÐI STYRKVEITINGA

    • Styrkt verkefni skulu ávallt fara fram í Edinborgarhúsinu eða í beinum tengslum við húsið.

    • Verkefnin skulu stuðla að fjölbreyttu og vönduðu viðburðahaldi og falla að hlutverki hússins sem menningarmiðstöð Vestfjarða.

    • Umsækjendur bera sjálfir ábyrgð á framkvæmd verkefnis og nauðsynlegum leyfum fyrir flutningi ef við á.

    4. UMSÓKNARFERLI

    • Umsóknum skal skila á rafrænu umsóknareyðublaði sjóðsins.

    • Í umsókn skal koma fram lýsing á verkefninu, tímasetning, markhópur, tímalína og aðrar viðeigandi upplýsingar um framkvæmd verkefnisins.

    • Umsækjendur skulu leggja fram fjárhagsáætlun þar sem fram kemur hvort sótt hafi verið um, eða fyrirhugað sé að sækja um, styrki í aðra sjóði. Sjóðurinn lítur það jákvæðum augum að verkefni njóti stuðnings frá fleiri en einum aðila.

    5. MATSVIÐMIÐ

    • Að verkefnið nýti möguleika Edinborgarhússins sem menningarog viðburðarhúss.

    • Að verkefnið efli fjölbreytni í dagskrá hússins og sé sannarlega viðbót við framboð menningarviðburða.

    • Að verkefnið hafi möguleika á að höfða til nýrra eða breiðari áhorfendahópa.

    • Að umsókn sýni fram á metnað, fagleg vinnubrögð og að verkefnið sé raunhæft í framkvæmd.

    • Að verkefnið styrki listalíf á Vestfjörðum, sérstaklega með þátttöku eða tengingu við listafólk á svæðinu, menningararf eða sögu svæðisins og/eða með öðrum hætti taki mið af staðbundnu samhengi.

    6. STYRKFJÁRHÆÐIR OG GREIÐSLUR

    • Hámarksstyrkur sjóðsins við einstakt verkefni er kr. 500.000.

    • Sjóðurinn áskilur sér rétt til að styðja verkefni til lengri tíma með sérstökum samningum.

    7. ÁBYRGÐ OG RÉTTINDI

    • Sjóðurinn ber ekki fjárhagslega ábyrgð á verkefnum sem styrk hljóta.

    • Styrkþegum er heimilt að nýta ákveðin rými í Edinborgarhúsinu endurgjaldslaust í tengslum við viðburðahald, enda liggi fyrir sérstakt samkomulag þar um áður en verkefni hefst.

    • Fjárhagslegur ávinningur, svo sem tekjur af miðasölu eða annarri sölu, að frádregnum aukalegum kostnaði sem kann að hljótast af verkefni, rennur til styrkþega nema um annað hafi verið samið sérstaklega.

    8. KYNNING OG SKIL

    • Í kynningarefni verkefna sem hljóta styrk skal koma fram að verkefnið sé styrkt af Minningarsjóði Jóns Sigurpálssonar og merki sjóðsins birt þar sem við á.

    • Styrkurinn er greiddur í tvennu lagi, 80% áður en verkefnið hefst og 20% við lok verkefnis.

    • Styrkþegar skulu skila stuttri greinargerð um framkvæmd verkefnis áður en styrkur er greiddur að fullu.

    9. AFTURKÖLLUN OG FRÁVIK

    Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að afturkalla styrkveitingu telji hún að verkefni verði ekki að veruleika eða að forsendur hafi breyst verulega. Stjórn sjóðsins áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum umsóknum og til að veita styrki utan auglýsts umsóknarferlis, enda samrýmist slíkar ákvarðanir markmiðum sjóðsins.

    Sjóðurinn veitir ekki rökstuðning fyrir afgreiðslu umsókna.

  • Fagráð hefur ráðgefandi hlutverk gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar í málefnum sem varða listræna stefnu og dagskrárgerð. Ráðið kemur að mótun áherslna áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Fagráð er skipað þremur einstaklingum af vettvangi lista og menningar og skal að minnsta kosti einn fulltrúi vera búsettur á Vestfjörðum. Ráðið er skipað beint af stjórn Edinborgarhússins en stjórn skal leitast við að tryggja að í ráðinu sitji einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn og úr ólíkum listgreinum. Fulltrúar skulu að hámarki sitja þrjú ár í ráðinu. Greitt er fyrir fundarsetu.

    Fagráð er kallað að borðinu (rafrænt eða í eigin persónu) tvisvar á ári:

    1. Við úthlutun úr Minningarsjóði Jóns Sigurpálssonar, þar sem ráðið fer yfir umsóknir og veitir faglegt álit á þeim. Stjórn Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar tekur hins vegar endanlega ákvörðun um úthlutun og ber ábyrgð á henni.

    2. Á einum vinnufundi síðla vors eða snemmsumars, þar sem drög að dagskrá næsta vetrar eru rædd í heild sinni. Fundurinn er nýttur til að kalla fram sjónarmið, benda á tækifæri og mögulegar gloppur áður en dagskrá er mótuð endanlega.

    Fundir fagráðs eru undirbúnir af framkvæmdastjóra/starfsmanneskju Edinborgar með greinargóðum gögnum og skráðar eru helstu ábendingar og niðurstöður.