Tímamótasamningur undirritaður

Ingi Björn Guðnason, stjórnarformaður Edinborgarhússins, Logi Már Einarsson, ráðherra og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri undirrita samninginn. Ljósmynd: Haukur Sigurðsson.

Í gær var stór dagur í sögu Edinborgarhússins þegar þríhliða samningur Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar var undirritaður. Undirritunin fór fram í Edinborgarhúsinu í tengslum við fjölmenna ráðstefnu um menningu og listir á Vestfjörðum.

Samningurinn gildir til næstu þriggja ára og með honum gjörbyltast rekstrar- og starfsskilyrði Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar.

Stefna fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg sem gildir til ársins 2030 verður leiðarljós í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Í stefnunni er sett fram sú framtíðarsýn að „Edinborg sé leiðandi menningarvettvangur á Vestfjörðum þar sem fjölbreytt viðburðahald og markviss listfræðsla fara saman í kröftugu samtali við nærsamfélagið.“

Undirritun samningsins markar upphaf nýs kafla í sögu Edinborgarhússins. Með traustari rekstrargrundvelli og skýrri framtíðarsýn skapast aukið svigrúm til metnaðarfullrar uppbyggingar menningarstarfs á Vestfjörðum til framtíðar.

Next
Next

Haustönnin í Edinborgarhúsinu