Rekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
Edinborgarhúsið á Ísafirði leitar að rekstraraðila til að taka við veitingarekstri í húsinu frá september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2026. Fyrirspurnir og umsóknir sendist á stjorn@edinborg.is.
Leitað er að aðila sem hefur áhuga á að byggja upp öflugan veitingarekstur til lengri tíma og vinna í nánu samstarfi við aðra starfsemi hússins.
Veitingareksturinn er sjálfstæð rekstrareining innan Edinborgarhússins og býður upp á fjölbreytt tækifæri til þjónustu við bæði heimamenn, ferðafólk og gesti viðburða. Gert er ráð fyrir að reksturinn beri eigið nafn sem ekki felur í sér heiti hússins (Edinborgarhúsið).
Húsnæði og aðstaða
Til ráðstöfunar er 219 fermetra veitingarými á jarðhæð Edinborgarhússins.
Aðstaðan er fullbúin til rekstrar og fylgir henni meðal annars:
Fullbúið eldhús
Innréttingar
Húsgögn
Borðbúnaður
Veitingasalur fyrir allt að 80 gesti í sæti
Auk veitingasalarins er mögulegt að nýta aðra sali hússins fyrir veislur, fundi, ráðstefnur, móttökur og stærri viðburði á vegum rekstraraðila samkvæmt nánara samkomulagi.
Um Edinborgarhúsið
Edinborgarhúsið er menningar- og samkomuhús í miðbæ Ísafjarðar þar sem fram fer fjölbreytt starfsemi allt árið.
Í húsinu eru meðal annars haldnir:
Tónleikar
Listsýningar
Leiksýningar
Fundir
Ráðstefnur
Veislur og móttökur
Dansleikir
Aðrir menningar- og samfélagsviðburðir
Rekstraraðili verður mikilvægur samstarfsaðili í starfsemi hússins og er gert ráð fyrir góðu og nánu samstarfi um þjónustu við viðburði og gesti.
Framtíðarsýn og stefna
Í byrjun árs 2026 samþykkti stjórn Edinborgarhússins stefnu fyrir tímabilið 2025–2030. Stefnan markar skýra framtíðarsýn fyrir starfsemi hússins og felur meðal annars í sér áframhaldandi uppbyggingu þess sem öflugrar menningarmiðstöðvar á Vestfjörðum, aukna áherslu á fjölbreytta dagskrá, samstarf við menningar- og menntastofnanir og aukna þátttöku samfélagsins í starfsemi hússins.
Leitað er að rekstraraðila sem hefur áhuga á að taka þátt í þessari vegferð og vinna í nánu samstarfi við Edinborgarhúsið til lengri tíma. Mikilvægt er að veitingareksturinn verði virkur þáttur í heildarupplifun gesta og styðji við hlutverk hússins sem lifandi vettvangs fyrir menningu, samfélag og skapandi starf.
Rekstrarhugmynd
Við leitum að aðila sem hefur skýra sýn á hvernig hann hyggst þróa og reka starfsemina til lengri tíma.
Í umsókn er óskað eftir upplýsingum um:
Fyrirhugaða starfsemi
Hugmyndir um matseðil og þjónustuframboð
Opnunartíma
Markhópa
Hvernig reksturinn tengist starfsemi hússins
Ekki er gert ráð fyrir einni fyrir fram skilgreindri rekstrarhugmynd heldur er áhersla lögð á að umsækjendur komi fram með eigin sýn og áherslur.
Samstarf við Edinborgarhúsið
Mikilvægt er að rekstraraðili hafi áhuga á samstarfi við menningarhúsið og taki virkan þátt í að skapa lifandi starfsemi í húsinu.
Gert er ráð fyrir samstarfi vegna:
Menningarviðburða
Tónleika
Móttaka og veisla
Funda og ráðstefna
Annarra viðburða í húsinu
Markmiðið er að veitingareksturinn og starfsemi hússins styrki hvort annað.
Önnur verkefni
Til greina getur komið, samkvæmt samkomulagi, að rekstraraðili taki að sér önnur verkefni fyrir Edinborgarhúsið, svo sem:
Þrif
Húsvörslu
Umsjón með bókunum
Önnur þjónustuverkefni sem tengjast starfsemi hússins
Slík verkefni yrðu samningsatriði milli aðila.
Umsóknir
Með umsókn skal fylgja:
Kynning á umsækjanda
Upplýsingar um reynslu af rekstri
Lýsing á rekstrarhugmynd
Aðrar upplýsingar sem umsækjandi telur skipta máli
Við mat á umsóknum verður meðal annars horft til:
Reynslu og hæfni umsækjanda
Rekstrarhugmyndar og framtíðarsýnar
Langtímahugsunar í rekstri
Getu til samstarfs í tengslum við aðra starfsemi hússins
Þjónustuframboðs og gæðasjónarmiða
Fyrirvari
Edinborgarhúsið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum eða hætta við ferlið á hvaða stigi sem er, telji það ekki forsendur til að ganga til samninga. Jafnframt áskilur Edinborgarhúsið sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum frá umsækjendum.
Frekari upplýsingar
Nýr rekstraraðili getur tekið við rekstrinum í byrjun september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á stjorn@edinborg.is.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2026.
