Ljósmynd: Ósk Ebenesersdóttir
Djásn / Darling: Kata Jóhanness & Rondi Park, sýningaropnun í Slunkaríki í Edinborgarhúsinu 12. júní 2026.
Sýningin leiðir saman verk eftir Kötu Jóhanness og Rondi Park.
Á mörkum hins sýnilega og ósýnilega kanna listamennirnir hvernig við söfnum, varðveitum og miðlum sögum í gegnum hluti, myndir og efnisheiminn í kringum okkur.
Verkin spretta úr sameiginlegum áhuga á töfrum hversdagsins, arfleifð, umhyggju og þeim ósýnilegu öflum sem móta líf okkar. Plastgimsteinar, mosi, glimmer, litir og form birtast sem fjársjóðir sem bera með sér minningar, merkingu og möguleika.
Djásn / Darling er jafnframt hugleiðing um vináttu, fjölskyldu, ást og samveru; um það sem við veljum að halda í og það sem rennur okkur úr greipum. Hér verða tengslin sjálf að eins konar djásnum, þar sem fegurð, forvitni og umhyggja fléttast saman í leit að því sem skiptir máli.
Sýningarstjóri: Helena Sólveigar Aðalsteinsbur
Vakin er athygli á því að sama dag kl. 16 opnar sýningin Aðlögun eftir Ragnhildi Stefánsdóttur og Valgerði Sigurðardóttur í Listasafni Ísafjarðar. Gestum gefst þannig tækifæri til að heimsækja báðar sýningarnar og njóta fjölbreyttrar myndlistar á Ísafirði.
