Örnefni, minjar og sögur á Vestfjörðum.
Vinnustofa verður haldin í Rögnvaldarsal Edinborgarhússins á Ísafirði sunnudaginn 14. júní kl. 13:00–17:00.
Viðburðurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á örnefnum, minjum og sögu Vestfjarða.
Unnið verður með kort, loftmyndir og skráningu, bæði á pappír og í tölvu. Farið verður yfir hvernig skrá má örnefni og hvernig koma má upplýsingum um minjar í réttan farveg.
Á staðnum verða Þórey Dalrós Þórðardóttir og Bjarney Guðbjörnsdóttir frá Landmælingum Íslands með leiðbeiningar um örnefnaskráningu og vinnu með Örnefnasjá.
Einnig koma Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur, og Lísabet Guðmundsdóttir, minjavörður Vestfjarða, með fræðslu um minjar og skráningu þeirra.
Ekki þarf mikla tölvukunnáttu. Mikilvægast er áhugi, þekking eða vilji til að varðveita upplýsingar sem annars gætu glatast.
Þátttökugjald: 3.000 kr.
Skráning og nánari upplýsingar: Bernharður Guðmundsson bernhardurg@gmail.com
Haldið af Fornminjafélagi Súgandafjarðar í samstarfi við Landmælingar Íslands.
