Við Djúpið stendur fyrir námskeiði með Masterclass-sniði fyrir leikara, söngnema og söngvara sem vilja styrkja sig á leiksviði og fólk með brennandi áhuga á söngleikjalist. Reyndir leik- og söngvarar leiða námskeiðið sem haldið er í samstarfi við Litla leikklúbbinn og fram fer í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Kennt verður 17. –20. júní en lokatónleikar námskeiðsins fara fram 21. júní. Allir þátttakendur fá einkatíma með kennurum og tækifæri til að koma fram á masterclass ásamt tónleikum. Fyrir námskeiðið þurfa nemendur að undirbúa 2 söngleikjalög en einnig verður unnið með dúetta sem kennarar úthluta nemendum.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst. Áhugasöm hafa samband við hello@viddjupid.is Gott ef fram kemur hvar nemendur standa í námi og á hvaða raddsviði þeir syngja. Þátttökugjald í námskeiðinu er 45.000 kr. Hátíðarpassi er innifalinn.
Meðlimir Litla leikklúbbsins fá 7.500 kr. afslátt af þátttökugjaldi.
Nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins eru á vef hátíðarinnar.
Kennarar:
Þórunn Arna Kristjánsdóttir (ÍS) söngur Pétur Ernir Svarsson (ÍS) söngur
