Back to All Events

Menntaþing Vestfjarða 2026

Vestfjarðastofa ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga kynnir:

MENNTAÞING VESTFJARÐA 2026

Hvernig sköpum við öflugra lærdómssamfélag á Vestfjörðum?

Á Menntaþingi Vestfjarða kemur saman fólk úr skólasamfélaginu, fagfólk, stjórnendur og áhugasamir til að ræða áskoranir, tækifæri og framtíðarsýn menntunar í fjórðungnum.

Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/29SiXyRyKE

Þátttaka er gjaldfrjáls, léttar veitingar verða innifaldar og rútur munu fara frá þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum.

Við munum eiga gott samtal og tengslamyndun yfir kaffi og mat og endum daginn saman með pallborði, móttöku og skemmtun.

Hvort sem þú starfar í leik-, grunn-, framhaldsskóla eða háskóla, í stoðþjónustu, stjórnsýslu eða hefur einfaldlega áhuga á menntamálum, þá er þetta vettvangur fyrir samtal, innblástur og samstarf.

Dagskrá:

10:00 Innritun og morgunhressing
10:30 Setning þings: Þórdís Jóna Sigurðardóttir,forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Gylfi Ólafsson, stjórnarformaður Fjórðungsþings Vestfjarða, Nanný Arna Guðmundsdóttir, leikskólakennari.
11:00 Ró í óróa - Streita og starfsorka: Ingibjörg Valgeirsdóttir, Saga Story House - Heilsueflandi fræðslufyrirtæki
12:00 Hádegismatur
13:00 Góð kennsla, góður skóli, gott menntakerfi – QUINT; Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við HÍ & Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við HA.
13:30 Vinnustofa: skólaþjónusta á Vestfjörðum
14:30 Kaffihlé
14:50 Málstofur: skólastarf á Vestfjörðum
16:00 Pallborð
16:45 Móttaka & skemmtun: Vigdís Hafliðadóttir, söngkona og uppistandari

Þingstjóri: Esther Ösp Valdimarsdóttir

Hlökkum til að sjá þig á Ísafirði!

Previous
Previous
5 June

Birna Rún – Bremsulaus á Ísafirði

Next
Next
11 June

Samtök atvinnulífsins: Hringferð SA 2026