Samband English

Þjóðleikhúsið sýnir Prinsinn

Þriðjudaginn 3. maí sýnir Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Frystiklefann á Rifi, nýtt íslenskt leikrit, Prinsinn, í Edinborgarhúsinu. Verkið er eftir þau Maríu Reyndal og Kára Viðarsson og byggir á sönnum atburðum.

Sýningin hefst kl. 20:00 og er miðasala í fullum gangi á vefnum leikhus.is.

Verkið er byggt á reynslu Kára sem horfðist í augu við það sautján ára gamall að eiga von á barni. En hversu áreiðanlegt vitni er maður í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt? María Reyndal leikstýrir verkinu, en auk Kára leika þau Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Sólveig Guðmundsdóttir og Birna Pétursdóttir í sýningunni. Frumsýnt verður á Rifi og í framhaldinu verður sýnt víða um land.

Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana!

Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann: 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, sem talar beint til okkar.

Höfundar

María Reyndal og Kári Viðarsson

Leikstjóri

María Reyndal

Leikmynd

Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson

Búningar

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Tónlist

Úlfur Eldjárn

Hljóðhönnun

Úlfur Eldjárn

Ásta Jónína Arnardóttir

Lýsing

Jóhann Friðrik Ágústsson


Nánar um sýninguna:

https://leikhusid.is/syningar/prinsinn/

Leikferð um landið

Alls verður Prinsinn sýndur á sjö stöðum víðs vegar um landið áður en sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu í haust. Miðasala er í fullum gangi á leikhusid.is.

Staðsetning og tími: Edinborgarsalur 3. maí kl. 20:00

© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames