Samband English

Rocky Horror Show

Söngleikurinn Rocky Horror í uppsetningu Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði verður frumsýndur 10.mars í Edinborgarhúsinu. 

Miðasala á Tix.is

Söngleikurinn var fyrst frumsýndur 1974 og hefur notið gríðarlegra vinsælda og þekkja flestir lögin úr verkinu. Söguþráðurinn er á þá leið að nýtrúlofað par, Brad og Janet lenda í ógöngum á leið sinni að hitta gamlan vin.  Rennandi blaut og köld ramba þau á drungalegan kastala.  Þeim er boðið inn og eftir það verður ekki aftur snúið.  Húsbóndinn er ekkert venjulegur og allt hyskið hans hverju öðru skrýtnara.  Það sem þau verða vitni að þessa nótt mun breyta þeim varanlega, forboðnir ávextir, losti og girnd svífa yfir vötnum.

Sýningar:

 

10.3-20:00
11.3-20:00
12.3-20:00
13.3-20:00
14.3-20:00
15.3-20:00
16.3-20:00
17.3-20:00
 
Miðasala á tix.is

 

Staðsetning og tími: Edinborgarsal 10.-17. mars

© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames