Back to All Events

1. maí – Baráttudagur verkalýðsins

Verkalýðsfélag Vestfirðinga boðar til baráttufundar í Edinborgarhúsinu 1. maí.

Dagskráin hefst með kröfugöngu frá Alþýðuhúsinu kl. 14, með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi.

Dagskrá í Edinborgarhúsinu

  • Lúðrasveit flytur nokkur lög

  • Ræðumaður: Finnbogi Sveinbjörnsson

  • Tónlistaratriði: Sigurbjörg Danía Árnadóttir flytur Maístjörnuna. Undirleikur: Judith Pamela Tobin

  • Pistill dagsins: Formaður Félags járniðnaðarmanna, Steinn Daníel Þrastarson

  • Einleikur: Elfar Logi Hannesson

  • Tónlist: Vistarbandið

Kynnir er Guðrún Sigríður Matthíasdóttir.

Að dagskrá lokinni er boðið upp á kaffiveitingar í Guðmundarbúð.

Previous
Previous
April 30

Fjórhentir tónleikar í LRÓ

Next
Next
May 2

Furðuverur í Fjörunni