Back to All Events

Furðuverur í Fjörunni

Menningarmiðstöðin Edinborg og Háskólasetur Vestfjarða standa fyrir sameiginlegum viðburði, Furðuverur í fjörunni, þar sem vísindi og list mætast á skapandi hátt. Viðburðurinn fer fram laugardaginn 2. maí 2026 kl. 10-14.

Furðuverur í fjörunni er hluti af barnamenningarhátíðinni Púkanum og er ætlaður nemendum í 3.-5. bekk grunnskóla.

Þátttaka er ókeypis en vegna takmarkaðs pláss er nauðsynlegt að skrá hana fyrir fram.

Skráningarform

Dagskrá:

10:00 Mæting í fjöruna í Neðstakaupstað, við Sæfara (sjá á korti)
Fræðsla um hvað leynist í hafinu og hvernig það er rannsakað. Krabbagildrur sóttar, innihald þeirra skoðað og skráð.

11:00 Haldið í Edinborgarhúsið þar sem fer fram nánari fræðsla um lífverurnar sem fundust í gildrunum og búsvæði þeirra.

11:30 Nestispása: Þátttakendur þurfa að taka með sér nesti.

12:00-13:30/14:00 Listasmiðja þar sem þátttakendur setja sig inn í búsvæði og aðstæður krabbanna. Nemendur vinna með þara og annað fundið efni úr fjöruni, auk lita og málningar.

Leiðbeinendur eru Una Lilja Erludóttir, nemi í haf- og strandsvæðistjórnun hjá Háskólasetrinu, og myndlistamaðurinn Þorgils Óttarr Erlingsson.

Verkefnið er styrkt af verkefnastyrkjum Púkans.

Previous
Previous
1 May

1. maí – Baráttudagur verkalýðsins

Next
Next
3 May

Fimmbíó Púkans og UngRIFF