Back to All Events

Fjórhentir tónleikar í LRÓ

Dagana 26. apríl til 1. maí fær Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar í Edinborgarhúsinu heimsókn frá fjórum píanónemendum og einum píanókennara frá Leo Kestenberg Musikschule í Berlín. Í tengslum við heimsóknina verða haldnir stuttir tónleikar fimmtudaginn 30. apríl kl. 18 í Rögnvaldarsal og eru allir hjartanlega velkomnir á þá.

Tilgangur heimsóknarinnar er að æfa saman fjórhent á píanó. Þetta er ekki fyrsta heimsóknin því skólarnir hafa átt í samstarfi frá árinu 2014. Á tímum covid tóku skólarnir þátt í Evrópuverkefni ásamt tónlistarskólum í París, Barcelona og Izmir. Verkefnið tók tvö ár og fólst í því að æfa saman og halda tónleika á netinu.

Previous
Previous
30 April

Snjallverslun Krónunnar – Kynning

Next
Next
1 May

1. maí – Baráttudagur verkalýðsins