Improv-hópefli
Spunaleikarinn Steiney Skúladóttir verður á Ísafirði dagana 18.-24. maí og tekur að sér hópefli fyrir fjölbreytta hópa.
Steiney er ein af reyndustu spunaleikurum Íslands og er margreyndur skemmtikraftur, fjölmiðlamanneskja og er með allra vinsælustu hópeflissérfræðingum Improv Ísland.
Hópeflið gæti verið einhvers konar upphitun fyrir haustið, þegar Improv Ísland verður með námskeið í Edinborgarhúsinu, en meira um það síðar!
Fyrir frekari upplýsingar og bókanir hafið samband á improvisland@improvisland.is.
