Styrkir frá OV og úr Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar

Edinborgarhúsið hlaut á dögunum góða styrki úr Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar og úr samfélagssjóði Orkubús Vestfjarða.

Sumarmyndlistarsýning og listasmiðja Slunkaríkis hlaut vilyrði fyrir styrk að upphlæð 200.000 kr. úr Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar. Þá fékk verkefnið Jazzhátíð í ágúst vilyrði fyrir styrk að upphæð 250.000 kr. úr sama sjóði.

Við úthlutun samfélagsstyrkja OV fékkst vilyrði fyrir 75.000 kr. vegna kaupa á kennsluskjá.

Þá er einnig gaman að segja frá því að Skákfélag Vestfjarða fékk 75.000 kr. frá OV vegna skákstarfs í Edinborgarhúsinu og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur, sýningarstjóri, fékk 50.000 kr. frá OV vegna Sumarmyndlistarsýningar og listasmiðju Slunkaríkis.

Við þökkum kærlega fyrir styrkina sem eru góður og mikilvægur stuðningur við starfið í Edinborgarhúsinu.

Next
Next

Improv-hópefli