Edinborgarhúsið fær veglega gjöf í minningu Jóns Hallfreðs
Matthildur Helgadóttir Jónudóttir, viðburðarstjóri tónleikanna, Helga S. Snorradóttir, ekkja Halla, Guðmundur Hjaltason, tónlistarstjóri, ásamt stjórnarfólki Edinborgarhússins, Rannveigu Jónsdóttur og Inga Birni Guðnasyni.
Þann 22. nóvember 2025 fóru fram vel heppnaðir heiðurstónleikar í minningu tónlistarmannsins Jóns Hallfreðs Engilbertssonar, Halla.
Aðgangseyririnn rann óskiptur til tækjakaupa fyrir Edinborgarhúsið og í dag, 1. apríl, komu tækin í hús.
Stjórn og starfsfólk Edinborgarhússins þakkar aðstandendum og vinum Halla kærlega fyrir þessa veglegu gjöf sem mun koma að einstaklega góðum notum við tónleikahald í húsinu.
Fyrir áhugasöm er búnaðurinn eftirfarandi:
· Ný skinn og standar fyrir trommusett
· Yamaha CK88 rafpíanó
· Fender Blues Junior Lacquered Tweed gítarmagnari
· Fender Hot Rod Deluxe IV gítarmagnari
· MarkBass 102P Mk V 2x10” combo bassamagnari
· Tveir Shure SM57 hljóðnemar
· Slurkur af xlr og jack snúrum
