Ný stefna Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar
Stjórn Edinborgarhússins hefur samþykkt nýja stefnu fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg, tímabilið 2025–2030, sem markar skýra framtíðarsýn fyrir starfsemi hússins og eflir rekstrargrundvöll þess til lengri tíma. Stefnan byggir á víðtæku samráði við listafólk, notendur hússins, samfélagið og aðra hagaðila, og felur í sér markvissar aðgerðir í viðburðahaldi, listnámi og samstarfi við menningar- og menntastofnanir.
Meðal helstu aðgerða stefnunnar er stofnun Minningarsjóðs Jóns Sigurpálssonar sem mun styðja við metnaðarfulla listviðburði í Edinborgarhúsinu næsta áratuginn. Sérstakt ráðgefandi fagráð verður stofnað til að styrkja listræna stefnumótun hússins. Þá verður áhersla lögð á barna- og fjölskyldudagskrá, aukna þátttöku ungs fólks í dagskrárgerð og regluleg tækifæri fyrir listafólk á svæðinu til fræðslu og tengslamyndunar. Nú þegar hefur verið ráðinn fræðslu- og viðburðarstjóri sem hefur meðal annars það hlutverk að efla listnám og fræðslustarf. Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar mun áfram vera í lykilhlutverki í því sambandi.
Stefnan kveður jafnframt á um bætt aðgengi að húsinu, skýrari ásýnd og langtímaáætlun um viðhald húsnæðis og tækjabúnaðar, auk þess sem unnið verður að samningi við ríki og sveitarfélag um stöðugt rekstrarframlag sem endurspeglar hlutverk Edinborgar í menningarlífi Vestfjarða.
„Með stefnunni er lagður traustur grunnur að næsta kafla í sögu Edinborgar. Hún skapar skýrari ramma um starfsemina, eykur fagmennsku og opnar á ný tækifæri fyrir listafólk og samfélagið allt. Markmiðið er að Edinborgarhúsið verði áfram hjarta menningarlífs á Vestfjörðum og lifandi vettvangur fyrir sköpun, samtal og þátttöku,“ segir Ingi Björn Guðnason, stjórnarformaður Edinborgarhússins. „Við þökkum öllum þeim sem komu að gerð stefnunnar með okkur og sérstakar þakkir fær Vigdís Jakobsdóttir sem leiddi vinnuna.“
