Back to All Events

Vekjandi listasmiðja – 6 vikna námskeið fyrir 6-12 ára börn

Vekjandi listasmiðja, námskeið fyrir börn á aldrinum 6-11 ára, í samstarfi við Vekjandi listmeðferð.
Smiðjurnar fara fram á þriðjudögum kl. 16:30-17:30, 27. október-1. desember.

Í listasmiðjunni fá börn tækifæri til að kanna efni, áferðir og eigin sköpunarkraft í öruggu og hvetjandi umhverfi. Áherslan er á ferlið frekar en lokaafurðina. Kennarar eru Sandra Borg Bjarnadóttir og Þorgils Óttarr Erlingsson.

Námskeiðsgjald: 35.000 kr.

Skráning fer fram í gegnum Abler og hægt er að nota frístundastyrk Ísafjarðarbæjar.

Hámarksfjöldi á námskeiðinu er 8 börn. Ef námskeiðið fyllist er hægt að skrá á biðlista. Ef mikill áhugi er á námskeiðinu verður hægt að bæta við öðru á sama tíma á mánudögum.

Previous
Previous
25 October

Skissu- og vatnslitanámskeið á Veturnóttum – sunnudagur

Next
Next
3 November

Magic the Gathering spilakvöld 3. nóvember