Miðvikudaginn 28. október standa samtökin Lífsvirðing fyrir opnum kynningarfundi um dánaraðstoð undir yfirskriftinni Dánaraðstoð: Að fá að ráða eigin lífslokum. Fundurinn hefst kl. 20 í Bryggjusal Edinborgarhússins.
Á fundunum munu Ingrid Kuhlman og Bjarni Jónsson, stjórnarmenn í Lífsvirðingu, fjalla um dánaraðstoð frá ýmsum hliðum. Meðal annars verður farið yfir hvað felst í hugtakinu dánaraðstoð, hvernig hún er frábrugðin líknarmeðferð og öðrum ákvörðunum við lífslok, helstu sjónarmið með og á móti dánaraðstoð og reynslu landa þar sem hún er heimil. Einnig verður fjallað um viðhorf Íslendinga til dánaraðstoðar og stöðu mála hér á landi.
Lífsvirðing var stofnuð árið 2017 og hefur það að markmiði að stuðla að opinni og málefnalegri umræðu og fræðslu um dánaraðstoð. Félagið vinnur jafnframt að því að sett verði löggjöf sem heimilar dánaraðstoð við vel skilgreindar aðstæður og að uppfylltum ströngum skilyrðum.
Góður tími verður gefinn fyrir spurningar og umræður að loknum fyrirlestrunum.
Gylfi Ólafsson verður fundarstjóri á kvöldfundinum.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
