Back to All Events

Skissu- og vatnslitanámskeið á Veturnóttum – laugardagur

Námskeið í skissugerð og vatnslitun í Edinborgarhúsinu á Veturnóttum

Námskeiðið er í boði bæði laugardaginn 24. október og sunnudaginn 25. október, kl. 12-14:30.

Námskeiðið hefst fyrir utan Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, þaðan sem gengið verður um Ísafjörð, umhverfið skoðað og gerðar skissur af því sem fangar augað. Síðan er farið inn og skissurnar notaðar sem upphafspunktur að áframhaldandi vinnu með vatnsliti.

Kennari er Gunnar Jónsson, myndlistarmaður.

Námskeiðið er ókeypis og opið öllum 12 ára og eldri, óháð reynslu og getustigi, en þátttakendur þurfa að geta unnið sjálfstætt. Allt efni er innifalið.

Viðburðurinn er styrktur af Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar.

Previous
Previous
24 October

Búningaskiptimarkaður fyrir hrekkjavökuna

Next
Next
25 October

Skissu- og vatnslitanámskeið á Veturnóttum – sunnudagur