Back to All Events

Búningaskiptimarkaður fyrir hrekkjavökuna

Velkomin á búningaskiptimarkað í Edinborgarhúsinu laugardaginn 24. október kl. 11-13.

Á markaðnum verður hægt að skiptast á búningum fyrir hrekkjavökuna.

Nú er tækifæri til að hreinsa úr búningakistum heimilisins og koma með búninga sem eru orðnir of litlir eða eru ekki lengur í notkun og finna nýja í staðinn.

Ekki er þörf á að koma með búninga til þess að fá búning á markaðnum.

Hægt er að koma með búninga og skilja þá eftir á skrifstofu Edinborgarhússins, annarri hæð, dagana fyrir viðburðinn.

Viðburðurinn er hluti af Veturnóttum.

Previous
Previous
23 October

Guðrið Hansdóttir – Útgáfutónleikar Sýrublað

Next
Next
24 October

Skissu- og vatnslitanámskeið á Veturnóttum – laugardagur