Velkomin á sýningu á verkum bandaríska listamannsins Rob Cook á gangi Edinborgarhússins þriðjudaginn 25. ágúst kl. 17:00.
Rob hefur sökkt sér í náttúrufegurð og þjóðsögur Íslands sem listamaður í listamannadvöl hjá ArtsIceland. Áhersla hans á sjálfbærni kemur skýrt fram í safni hans af ágengum, erlendum plöntum, jurtum og jafnvel fiskroði sem hann hefur safnað á Vestfjörðum.
Rob er myndhöggvari og fæddist í Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Hann er með gráðu í arkitektúr frá Carnegie Mellon-háskólanum og hefur nýlega lokið MFA-gráðu í myndlist með áherslu á höggmyndalist frá Towson-háskólanum í Baltimore í Maryland.
Rob hefur alla tíð sótt í náttúruna og verk hans endurspegla tengsl okkar við hana. Hann notar pappír sem miðil til að vekja athygli á umhverfisvernd og sjálfbærni og hvetja aðra til að taka þátt í að meta og njóta fegurðar náttúrunnar.
