Back to All Events

Moses Hightower: MOSES er víða

Í ágúst og september ætlar Moses Hightower að vera víða við fimmta mann og spila sig í fyrsta sinn hringinn í kringum landið í einni rispu.

Þeir koma við í Edinborgarhúsinu föstudaginn 21. ágúst.

Miðasala

Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu og ennþá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu. Stökkvið á Moses-lestina!

  • Hvenær: Föstudaginn 21. ágúst

  • Hvar: Edinborgarhúsinu, Ísafirði

  • Aðgangseyrir: 5.990 kr.

Miðasala

Previous
Previous
15 August

Þjóðbúningahátíð

Next
Next
26 August

Matti Klein Soul Trio – Sálartónar og sveifla