Litli leikklúbburinn stendur fyrir dansnámskeiði með söngleikjaþema mánudaginn 11. maí kl. 18-20:30. Kennari er Chantelle Carey, sem er margverðlaunaður danshöfundur sem hefur komið að uppsetningu fjölda söngleikja, meðal annars í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Námskeiðið er ætlað fyrir 15 ára og eldri. Skráning er nauðsynleg og fer fram í gegnum skráningarform.
Námskeiðsgjald er 3.000 kr. og greiðist með millifærslu á: Litli leikklúbburinn 440269-7459 556-14-407459