Back to All Events

Fræðslufundur um almyrkva sólu

Stjörnu-Sævar, Markaðsstofa Vestfjarða og Ísafjarðarbær bjóða á fræðslufund um almyrkva sólu.

Föstudaginn 8. maí kl. 18:00–19:00 verður haldinn opinn fræðslufundur í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu fyrir íbúa á Vestfjörðum um almyrkva sólu sem verður þann 12. ágúst 2026.

Á fundinum mun Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar fjalla um þetta einstaka náttúrufyrirbæri, hvað gerist þegar almyrkvi verður, hvernig best er að fylgjast með honum á öruggan hátt og hvað íbúar þurfa að hafa í huga.

Previous
Previous
7 May

Samfylkingin: Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur

Next
Next
11 May

Litli leikklúbburinn: Dansnámskeið með söngleikjaþema