Sumar 2022

NR4 UMHVERFING; Myndlistarverkefni

Akademía skynjunarinnar stendur að menningarverkefninu Umhverfing. Forsvarsmenn Akademíunnar eru Anna Eyjólfs, Ragnhildur Stefánsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir. Þær eru jafnframt skipulags og verkefnastjórar verkefnisins ásamt Jóni Sigurpálssyni, myndlistarmanni á Ísafirði. Grunnhugmyndin er að sýna verk eftir myndlistarmenn sem búa í eða eiga ættir að rekja til þess landshluta sem sýnt er í hverju sinni og að þeir myndlistarmenn séu virkir í sköpunarstarfi sínu, eða hafi verið það séu menn látnir.

Markmið verkefnisins nr. 4 Umhverfing er ferðalag um Dali, Strandir og Vestfirði til að kynna menningu og náttúru með myndlist á hefðbundnum og óhefðbundum sýningastöðum og í samstarfi við nærsamfélagið á hverjum stað og skapa umræðu um tilgang lífs og lista.

Sýningar í Edinborgarhúsinu

77. Hansína Jensdóttir
Útópía / Distópía, 2022, Kopar, látún, stál, silicon

Fullkominn veruleiki býr í fortíðarþrá eða framtíðarsýn. Inn á milli þess búum við. Verkið kannar raunveruleikann og hvað er bjagaður raunveruleiki. Býr útópía og distópía í þeirri bjögun. Ef þú breytir efninu en formið heldur sér, er blóm þá ennþá...blóm?

Ég er ættuð frá Ísafirði faðir minn Jens ólst upp þar og þaðan á ég margar góðar bernskuminningar að leika mér í kringum skúlptúrísk fjöllin.

78. Unndór Egill Jónsson
Andvari, 2020, viður, vélbúnaður og strá

Mótor snýr Birkiberki. Pensil nemur hreyfinguna og yfirfærir hana á stráið. Það sýnist blakta í hægum andvara
Í verkinu er reynt að endurgera þá einföldu athöfn þegar strá blaktir í hægum andvara um leið og verkið upphefur þessa.

Amma mín, Bjarney Alexsandersdóttir er fædd á Dynjanda í Leirufirði í Jökulfjörðum.

79. Dóra Árna
Mín sýn, 2022, Olía á striga

Hver og einn skynjar náttúruna á sinn hátt í endalausum augnablikum tímans.
Ásýnd verksins er mín sýn.
Alls staðar og hvergi.
Náttúran tekur á sig ýmsar myndir.
Ásjóna hennar breytist frá einum tíma til annars.
Þannig er hún margbreytileg í ásjónu sinni, þar sem birta, dimma, skin og skúrir leika hlutverk augnbliksins.
Þannig fangar hún hug minn í verkum mínum.

Ég á ættir að rekja til Súðavíkur, þar sem ég dvel gjarnan eins mikið og kostur er á sumrin. Ég bjó einnig um árabil á Ísafirði. Ég útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2002.

80. Haraldur Jónsson
kvenleggur / ásjóna / ljósrit, 2022, A4 og ljósmyndir

Verkið er samsett úr þremur pörum, sem hanga í augnhæð eftir sama veggnum. Rætur verksins liggja frá langömmu minni Steinunni Ragnheiði Guðmundsdóttur sem fædd er á Gemlufelli við Dýrafjörð árið 1866. Hún var rómuð fyrir mikla fingrafimi og ótal milliverk sem hún heklaði alveg fram undir það síðasta. Þrír núlifandi afkomendur hennar í beinan kvenlegg; móðir mín Áslaug Stephensen, f.1932, Edda systir mín, f.1970 og dóttir hennar Steinunn Lóa, f. 2001 mynda verkið. Hver í sínu lagi létu þær augun hvíla á ósnortnu ljósritunarblaði í góða stund. Þannig lýstu þær upp pappírinn með augliti sínu sem nú dvelur í yfirborði hans um ókomna tíð.

81. Valdimar Jóhannsson og Kristín Geirsdóttir
Lagkaka, 2022, olía á masonít, hljóð

Myndlistarmaðurinn Kristín og tónlistarmaðurinn Valdimar leggja saman krafta sína við sköpun verksins undir áhrifum töfra vestfirskra fjalla þar sem allt getur gerst í ferlinu. Litir flæða. Hljóð bærast, birta og glóð renna saman í eitt. Útkoman verður óræð. Verkið er unnið úti í náttúrunni og fært inn í sýningarrýmið.

82. Páll Sólnes
Landslag eftir minni, 2021, Olía á dúk

Landslag er ekki aðeins landafræðilegs eðlis, né nauðsynlega tiltekinn staður. Það getur einnig verið innri veröld og ummerki hughrifa á mörkum landslags og möguleika þess rýmis sem verður til í eigin krafti litanna.

Ísafjörður er fæðingarstaður föður míns.

83. Spessi
Alþýðuhetjur, 2022, Ljósmynd, skilti

Níu fiskverksverkakonur stilla sér upp fyrir myndatöku með verkstjóra sínum. Myndin er endursköpun á mynd af saltfiskverkakonum á 100 ára gamalli ljósmynd úr Neðstakaupstað á Ísafirði.

Nöfn Alþýðuhetjanna, frá vinstri:
Joanna Pietrzyk-Wiszniewska, Barbara Wielgosz, Aleksandra Mazurek, Patrycja Ciecka, Sveinn Guðjónsson, Klaudia Lenkiewicz, Rósa Sigríður Ásgeirsdóttir, Elísabet Anna Traustadóttir, Rebekka Baldursdóttir, Aleksandra Baranowska.

Spessi ólst upp á Ísafirði og þangað hefur hann oft sótt innblástur í sín verk.

Verk hans bera sterkan blæ skrásetningar og umfjöllunarefnin fela oft í sér beitta samfélagsrýni. Í verkunum leynist saga sem birtir blákaldan veruleika sama hvort myndefnið er manneskjan eða umhverfið.

Previous
Previous

2024 MIRJAM MAEKALLE: Litli eistinn sem gat (part I)

Next
Next

2020 Jón Sigurpálsson, Pétur Kristjánsson og Örlygur Kristfinnsson: Ypsilon gogg