31. maí – 14. júlí 2024

Einkasýning Mirjam Maekalle; Litli eistinn sem gat (part I).

Á sýningunni Litli eistinn sem gat (Part I) vinnur Mirjam Maekalle með ljósmyndir frá æsku sinni í Eistlandi áður en hún flutti með fjölskyldu sinni til Íslands. Lands sem var ekki hluti af tilveru hennar fyrr en árið 2002. Í gegnum myndirnar er fjallað um einstakling í mótun og sambönd hennar við sýna nánustu. Hugað er að sjálfsmynd og breytingum persónuleika þess sem skiptir um umhverfi.

Mirjam Maekalle er myndlistarmaður fædd í Eistlandi og uppalin á Ísafirði en býr í dag í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2023, einnig hefur hún lokið BA gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands en þá menntun nýtir hún sér vel í myndlistinni þar sem umfjöllunarefnið gjarnan mannlegt ástand.

Sýningin hlýtur stuðning úr sumarviðburðasjóði hafna Ísafjarðarbæjar.

Previous
Previous

2024 JÓN SIGURPÁLSSON: Vitar – Afmælissýning