1.  – 15. nóvember 2025

Pétur Guðmundsson; Tvöföld afmælissýning.

Laugardaginn 1. nóvember opnar myndlistarmaðurinn Pétur Guðmundsson sýningu í Gallerí Slunkaríki í Edinborgarhúsinu og Gallerí Úthverfu.

Tilefnið er tvenns konar, 40 ára afmæli Slunkaríkis og 75 ára afmæli listamannsins. Alls telur sýningin 75 myndir af ýmsu tagi, allt frá málverkum til teikninga, auk myndskreyttra limra.

Pétur Guðmundsson er ísfirskur myndlistarmaður og einn af stofnendum Slunkaríkis og Myndlsitarfélagsins á Ísafirði. Hann hefur haldið um 70 einka- og samsýningar hér heima og erlendis.

Next
Next

2025 LOGI LEÓ GUNNARSSON OG UNA BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR: Milli þátta