18. júlí – 15. ágúst 2025Logi Leó Gunnarsson og Una Björg Magnúsdóttir; Milli þátta – Afmælissýning Slunkaríkis.
Partýpinninn hefur ekki látið af störfum. Þó hann sé hættur í áfengu drykkjunum þá mætir hann enn í gleðskapinn, setur plötu á fóninn og byrjar að dansa.
— Hrærðu í drykk fyrir mig, bara sevenup og sóda, ekkert rugl.
Það er í bilinu sem listin verður til. Bilið spilar hlutverk, kannski það stærsta. Þarna á milli, það stirnir á listina ef þú einbeitir þér aðeins og pírir augun. Hún er einakróna á gangstéttarhellu eftir skúr. Gulnað blað, krumpuð ljósmynd, hljóðlátt hljóðverk, aukaleikari sem vill verða aðal. En fær hann það?
Í bilinu gefst tækifæri til þess að hugsa, hlusta, skoða. Ekki yfirgefa salinn í hléi, ekki gefast upp á verkinu. Það er hægt að bjarga ýmsu á meðan gestir pissa og fá sér drykk, margt hægt að gera á milli þátta.
Listamennirnir hafa safnað í sarp, sett saman, sett upp. Nagli í vegg, stöpull á gólfi. Við þér blasir kompósissjón, samansafn verka. Ný verk, verk með vaxtaverki. Ein heild en líka stök mengi. Sérðu bilið á milli þeirra?
Tveir sentimetrar í viðbót, einn millimeter. Féið er fundið. Það er búið að raða leikmönnum upp í salinn. Gestirnir eru komnir. Við sköpuðum þetta saman, sköpuðum með því að vanrækja. Einbeittum okkur bara að því að gera jógúrtsósur með kvöldmatnum og laga þakið á sumarbústaðnum. En sköpunin mallaði í bakgrunni, á milli þátta, á meðan, og hérna erum við, komin saman í dag. Götin, krumpurnar, skuggarnir og ískrið. Velkomin, fáið ykkur drykk. Partýpinninn býður.
—
Milli þátta, afmælissýning Slunkaríkis í tilefni af því að 2025 voru liðin 40 ár frá því að Myndlistarfélag Ísafjarðar stofnaði galleríið.
Á sýningunni eru fjölbreytt verk eftir þau Loga og Unu, meðal annars fundin pappírsverk, málmskúlptúra, staðnaða skugga og endurtekin umhverfishljóð. Logi Leó Gunnarsson og Una Björg Magnúsdóttir hafa unnið samhliða að list sinni síðastliðin tíu ár, sýnt saman en aldrei viljandi. Þetta er þeirra fyrsta samsýning.
—
Logi Leó Gunnarsson (f. 1990) útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2014. Upphafspunktur í verkum hans eru yfirleitt hljóð. Hann vinnur oft með hugmyndina um augnablik í skúlptúrum sínum og innsetningum. Í því felst oft að finna lykkju í hreyfingu, einangra hana, gefa henni óskipta athygli og finna í henni hið óvænta og einfalda. Logi Leó hefur nýlega tekið þátt í sýningum í Nýlistasafninu (2024) Listasafni Reykjavíkur (2023), ARS LONGA samtímalistasafni á Djúpivogi (2022), Y gallery í Kópavogi (2022) og í One Minute Space í Aþenu (2021). Hann býr og starfar í Reykjavík.
Una Björg Magnúsdóttir (f. 1990) beitir ýmsum brögðum í verkum sínum til að velta upp spurningum um fegurð, gildi, tilvist okkar, hegðun og hátterni. Hún notar til þess áferð og gildishlaðin efni á slunginn en sparlegan hátt. Með nákvæmum uppstillingum á fábrotnum munum skapa verkin ákveðið sýndaryfirborð þar sem allt virðist með felldu. En verkin taka á sig háttvísa blekkingu og dansa á óræðum skilum þess raunverulega og eftirlíkingar. Una Björg nam myndlist við Listaháskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við ÉCAL í Sviss þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Hún býr og starfar í Reykjavík. Verk hennar hafa verið sýnd meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni ASÍ, Gerðarsafni, Y gallerí, Ásmundarsal, KEIV í Aþenu, GES-2 í Moskvu og Künstlerhaus Bethanien í Berlín.
—
Sýningin er studd af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Viðburðarsjóði Hafna Ísafjarðarbæjar.
