Rafræn vöktun
Öryggismyndavélar
Í Edinborgarhúsinu fer fram rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum. Tilgangur myndavélanna er að varna því að eigum sé stolið, þær séu skemmdar eða farið sé um húsnæðið í leyfisleysi, auk þess að tryggja öryggi gesta og starfsfólks.
Upptökur úr myndavélunum eru án hljóðs og eru þær varðveittar í 30 daga samkvæmt 11. gr. reglna nr. 50/ 2023 um rafræna vöktun. Upptökum er eytt að þeim tíma liðnum. Þetta á ekki við um upptökur sem hafa verið sendar lögreglu vegna slysa eða refsiverðra mála, upptökur vegna sönnunar krafna í dómsmálum eða annarra slíkra laganauðsynja eða að Persónuvernd heimili sérstaklega eða mæli fyrir um lengri varðveislutíma.
