Tónlistarhátíðin Við Djúpið býður upp á tónlistarleikjanámskeið fyrir börn á grunnskólaaldri sem eru í sumarfríi. Námskeiðið er er fyrir börn og ungmenni, 8–15 ára, sem hafa gaman af og langar að syngja meira. Unnið verður í aldursskiptum hópum en þátttakendur læra lög úr ólíkum áttum, bæði íslensk og erlend og fá innsýn í grunnatriði í tónlist, túlkun og samvinnu í hópi. Unnið er með leiki, raddbeitingu og einfaldar hreyfingar til að efla hlustun, samhljóm og sjálfstraust í gegnum kórsöng.
Leiðbeinendurnir eru reyndir kórstjórar sem starfa meðal annars við Langholtskirkju í Reykjavík og hafa getið sér mjög gott orð í vinnu með börnum.
Kennt verður í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsi 18.–21. júní (fim–sun) og lýkur námskeiðinu með nemendatónleikum kl. 13. sun. 21. júní.
Markmið námskeiðsins er að kveikja sönggleði, efla tónlistarþroska og skapa jákvæða upplifun af því að syngja saman. Öll börn og ungmenni eru velkomin, óháð kyni og fyrri tónlistarreynslu.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst og er áhugasömum bent á að senda fyrirspurn á hello@viddjupid.is. Þátttökugjald er 16.000 kr. Nánari upplýsingar um tilhögun eru á vef hátíðarinnar.
Kennarar:
Björg Þorsdóttir (ÍS) kórstjóri Sunna Karen Einarsdóttir (ÍS) kórstjóri
