Back to All Events

Vekjandi listasmiðja fyrir börn 6-12 ára

Menningarmiðstöðin Edinborg og Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar bjóða upp á listasmiðju fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í samstarfi við Vekjandi listmeðferð.

Skráning fer fram í gegnum vefform.

Fullbókað er á námskeiðið!

Smiðjurnar fara fram á mánudögum kl. 16:30 frá 9. mars til 27. apríl (hlé í dymbilviku og á annan í páskum). Fyrstu þrjú skiptin fara fram 9. 16. og 23. mars en seinni þrjú skptin 13. 20. og 27. apríl.

Í listasmiðjunni fá börn tækifæri til að kanna efni, áferðir og eigin sköpunarkraft í öruggu og hvetjandi umhverfi. Áherslan er á ferlið frekar en lokaafurðina.

Listasmiðjan
- býður upp á leik með liti og efni á frjálsan og skapandi hátt
- styður við þroska sjálfsvitundar, seiglu, sköpunarkrafts og tilfinningalæsis barna

Hver tími byggir á þema sem virkjar sköpunarkraftinn og býður börnunum að vinna á sínum eigin forsendum, án pressu og kröfu um að „gera rétt“.

Staðsetning: Edinborgarhúsið 2. hæð
Hvenær: Mánudagar kl. 16:30
Tími: 1 klst á viku
Fjöldi: Hámark 8 börn í hóp
Verð: 26.000 - allt efni innifalið

Leiðbeinendur eru Sanda Borg Bjarnadóttir, listmeðferðarfræðingur og Þorgils Óttar Erlingsson, myndlistamaður.

Previous
Previous
April 15

Miðvikudagsskákmót Skákfélags Vestfjarða

Next
Next
April 25

Söngstund fyrir yngstu börnin 25. apríl