Back to All Events

Magic the Gathering spilamót

MAGIC: THE GATHERING PRERELEASE-MÓT
Star Trek
Laugardaginn 14. nóvember kl. 13–17:30 í Edinborgarhúsinu
Verð: 5.999 kr., greitt fyrirfram hjá Nexus

Prerelease-pakkinn er bara seldur hjá Nexus, ekki á staðnum. Kauptu hann í síðasta lagi miðvikudaginn 11. nóvember og veldu „Sækja í Nexus“ sem sendingarmáta. Nexus sendir pakkann vestur og þú færð hann afhentan þegar þú mætir.
Kaupa prerelease-pakka: https://nexus.is/vara/star-trek-prerelease-isafjordur-14-november-forsala/

Í pakkanum eru sex Star Trek Play Booster pakkar, foil spil og d20 teningur. Þú opnar þá á staðnum og býrð til 40 spila stokk úr því sem þú færð. Við lánum lönd og allt annað sem vantar, svo þú þarft ekki að taka neitt með þér.

Öll velkomin, vön sem óvön! Hefurðu aldrei spilað? Það verður einhver á staðnum sem hjálpar þér með stokkinn og reglurnar.

Spilaðar verða þrjár umferðir, best af þremur. Þú færð einn pakka fyrir hvern sigur, og allir fara heim með að minnsta kosti einn.

Previous
Previous
5 November

Magic the Gathering spilakvöld 5. nóvember

Next
Next
14 November

Skúli mennski og hljómsveit