Spilafélag Vestfjarða stendur fyrir móti í Magic: The Gathering í Edinborgarhúsinu.
Sealed í Reality Fracture
Laugardaginn 3. október kl. 13-18 í Edinborgarhúsinu
Verð: 6.000 kr., greitt á staðnum
Öll velkomin, vön sem óvön! Hefurðu aldrei spilað Magic? Þá er þetta dagurinn til að byrja.
Í sealed færðu sex óopnaða pakka og býrð til 40 spila stokk úr því sem þú opnar. Reality Fracture settið kemur út daginn áður og enginn mætir með tilbúinn stokk, þannig að allir byrja á sama stað.
Þú þarft ekki að taka neitt með þér. Við sjáum um pakkana, löndin og allt annað sem þarf.
Það verður einhver á staðnum sem getur sest niður með þér, hjálpað þér að velja spilin og svarað spurningum um reglurnar. Aðalatriðið er að hafa gaman.
Við spilum þrjár umferðir, best af þremur. Efstu þrjú sætin fá box topper í verðlaun.
Engin skráning. Það eru 20 sæti laus og fyrstur kemur, fyrstur fær, svo það borgar sig að mæta tímanlega.
