Menningarmiðstöðin Edinborg og LRÓ standa fyrir myndlistarnámskeiði fyrir unglinga, 12-16 ára, fimmtudaginn 17. september kl. 18-20.
Skráning fer fram í gegnum Abler. Námskeiðsgjald er 5.000 kr. og hægt er að nota frístundastyrk Ísafjarðarbæjar til að greiða fyrir námskeiðið.
Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á öruggt og styðjandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á sköpunarferlið fremur en lokaafurðina. Áhersla er á að efla listrænt sjálfstraust, sköpunargáfu og samskiptahæfni. Þannig gefst nemendum tækifæri til að uppgötva og tjá eigin styrkleika í gegnum listina.
Kennari er Stefania Zagan. Stefania er menntuð í myndlist auk þess að vera með háskólagráðu í listasögu og kennsluréttindi.