Back to All Events

Look North – Djasstónleikar

Fransk-breska djasstríóið Look North kemur fram í Edinborgarhúsinu 1. september.

Miðasala

Gary Brunton, Daniel Beaussier og Célestine de Williencourt mynda spennandi nýtt tríó þar sem fjölhljóðfæraleikur, söngur og spunaleikur skipa stóran sess. Tónlist þeirra er frásagnarkennd og ljóðræn, og býður upp á ferska sýn á samtímajazz og skapandi spunatónlist.

Fyrsta plata tríósins, Look North, er ferðalag um frumsamin verk sem kalla fram víðáttur norðursins og stemningu opins landslags. Tónlistin er um leið boð um uppgötvun og ferð inn í hljóðheim sem sameinar næmni, frelsi og sterka melódíska tilfinningu.

Upplýsingar um viðburðinn:

  • Hvenær: Þriðjudaginn 1. september kl. 20:30

  • Hvar: Edinborgarhúsinu, Ísafirði

  • Aðgangseyrir: 3.500 kr.

Miðasala

Viðburðurinn er í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur og styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar.

Previous
Previous
27 August

Opin BALL-smiðja fyrir ungmenni 13–19 ára

Next
Next
6 September

Atskákmót Skákfélags Vestfjarða