Perúska listakonan Luz María Bedoya, sem dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu hjá ArtsIceland kynnir verk sitt All the Lighthouses of the Peruvian Coast í Bryggjusal Edinborgarhússins.
Verkið er samstarfsverkefni listakonunnar með hljóðlistafólki, margmiðlunarverk þar sem tónlist og siglingafræði fléttast saman. Luz María fjallar um myndræna nótnaskrift sína, sem byggir á vitum meðfram perúsku Kyrrahafsströndinni, og leiðir hlustun á hljóðverkum sem unnin eru af perúsku tónlistarfólki. Að auki mun pólski tónlistarmaðurinn Piotr Karczmarek, sem búsettur er á Ísafirði, flytja eigin útfærslu á verki Luz María og ljúka þannig kvöldinu.
All the Lighthouses of the Peruvian Coast er verkefni sem hófst í Perú árið 2020 sem hluti af sameiginlegu átaki MALI og Fundación Telefónica Movistar. Árin 2024 og 2025 var verkið sýnt og þróað áfram á 15. Havana-tvíæringnum. Nánari upplýsingar má finna á www.todoslosfaros.org.
Viðburðurinn fer fram í Bryggjusalnum föstudaginn 24. apríl kl. 20:00.
