Back to All Events

Já til að SJÁ – Opinn fundur

Opinn fundur SJÁ-hreyfingarinnar í Bryggjusal Edinborgarhússins mánudaginn 10. ágúst kl. 17.

SJÁ efnir á næstu vikum til opinna funda víðs vegar um landið þar sem fólk kemur saman til að kynna sér málin, hitta annað jákvætt fólk og eiga góða stund.

SJÁ er samansafn fólks úr öllum áttum sem sameinast um einfalda hugmynd: að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst – já til að sjá samning

Við teljum mikilvægt að Íslendingar fái tækifæri til að kynna sér hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið myndi fela í sér áður en endanleg ákvörðun er tekin. Hreyfingin er opin öllum, óháð afstöðu til þess hvernig kosið yrði að loknum mögulegum samningaviðræðum.

Að dagskrá lokinni verður notaleg samvera þar sem gestir geta hist og spjallað.

Previous
Previous
10 August

Leiklistarhópur Halldóru: Leiklistarnámskeið 10.-14. ágúst

Next
Next
15 August

Þjóðbúningahátíð