Improv Ísland, Edinborgarhúsið og Litli leikklúbburinn bjóða upp á námskeið í spuna fyrir unglinga, ungmenni og fullorðna.
Námskeiðin fara fram dagana 7.-11. september. Í tengslum við námskeiðið heldur Improv Ísland einnig spunasýningu í Edinborgarhúsinu laugardaginn 12. september.
Kennari á námskeiðunum er Guðmundur Felixson spunaleikari, sem er nýkominn aftur til Íslands eftir meistaranám ì leikstjórn í Prag.
Á námskeiðunum læra þátttakendur grunnreglur spunans á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Kynnt er hugmyndafræðin um „Já og“ og „fyrsta sem þér dettur í hug“ en þær nýtast ekki aðeins á sviði leiklistar heldur í allri skapandi vinnu sem og í lífinu sjálfu.
Ekkert gjald er fyrir unglinga og ungmenni en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir fram. Gjald fyrir fullorðna er 10.000 kr.
Nánari upplýsingar:
Námskeið fyrir börn í 7.-10. bekk
Mánudaginn 7. september kl. 15:10-16:30.
Miðvikudaginn 9. september kl. 15:10-16:30.
Föstudaginn 11. september kl. 15:10-16:30.
Námskeið fyrir ungmenni, 16 ára og eldri
Þriðjudaginn 8. september kl. 17:00-19:00.
Fimmtudaginn 10. september kl. 17:00-19:00.
Námskeið fyrir fullorðna
Mánudaginn 7. september kl. 19:30-21:30.
Þriðjudaginn 8. september kl. 19:30-21:30.
Fimmtudaginn 10. september kl. 19:30-21:30.
