Back to All Events

Fagurstúfur: Kata Jóhanness & Rondi Park, sýningaropnun í Slunkaríki

Ljósmynd: Ósk Ebenesersdóttir

Fagurstúfur: Kata Jóhanness & Rondi Park, sýningaropnun í Slunkaríki í Edinborgarhúsinu 12. júní 2026.

Sýningin leiðir saman verk eftir Kötu Jóhanness og Rondi Park.
Á mörkum hins sýnilega og ósýnilega kanna listamennirnir hvernig við söfnum, varðveitum og miðlum sögum í gegnum hluti, myndir og efnisheiminn í kringum okkur.

Verkin spretta úr sameiginlegum áhuga á töfrum hversdagsins, arfleifð, umhyggju og þeim ósýnilegu öflum sem móta líf okkar. Plastgimsteinar, mosi, glimmer, litir og form birtast sem fjársjóðir sem bera með sér minningar, merkingu og möguleika.

Fagurstúfur er jafnframt hugleiðing um vináttu, fjölskyldu, ást og samveru; um það sem við veljum að halda í og það sem rennur okkur úr greipum. Hér verða tengslin sjálf að eins konar djásnum, þar sem fegurð, forvitni og umhyggja fléttast saman í leit að því sem skiptir máli.

Sýningarstjóri: Helena Sólveigar Aðalsteinsbur

Vakin er athygli á því að sama dag kl. 16 opnar sýningin Aðlögun eftir Ragnhildi Stefánsdóttur og Valgerði Sigurðardóttur í Listasafni Ísafjarðar. Gestum gefst þannig tækifæri til að heimsækja báðar sýningarnar og njóta fjölbreyttrar myndlistar á Ísafirði.

Previous
Previous
8 June

Menntaþing Vestfjarða 2026

Next
Next
13 June

Gersemi: Listasmiðja fyrir börn og fjölskyldur