Back to All Events

Etcetera's etcetera – Þátttökusýning og gjörningur Tanguy Bret

Röddin er í miðju verksins. Rödd sem heldur áfram, andar inn og út, hikstar, endurtekur sig og þagnar aldrei alveg. Innblásturinn kemur frá skáldsögunni The Unnamable eftir írska rithöfundinn Samuel Beckett, þar sem persónurnar hafa horfið og aðeins rödd er eftir.

Í dvöl sinni á Vestfjörðum hefur franski listamaðurinn Tanguy Bret unnið með þessa rödd í gegnum teikningar, handskrift, grafík og innsetningar. Verkið sprettur úr nákvæmri rannsókn á textanum, en þróast áfram í efnisleg form sem fanga tíma, hugsanir og endurtekningar.

Dagana 14. og 15. nóvember kl. 10-17, mætast listamaðurinn, röddin og gesturinn í Bryggjusal í Edinborgarhúsinu. Sagan er enn í mótun og heldur áfram að vaxa, rétt eins og röddin sjálf.

Tanguy Bret er franskur listamaður með aðsetur í Bourges (18000). Verk hans byggjast á langtímaverkefnum sem fela í sér eigið sköpunarferli og gera hinu hverfula og varanlega kleift að mynda brú yfir ólíkar tjáningarleiðir, bæði innan læsilegs máls og táknlausrar (asemískrar) tjáningar. Hann kýs að vinna með hversdagsleg og brothætt efni og fléttar saman teikningu, ritun, skúlptúr, gjörningalist og ljósmyndun. Oft skapar hann yfirgripsmiklar innsetningar þar sem mörk miðlanna leysast upp og renna hvert inn í annað, þannig að eftir standur fíngerð og varla greinanleg vísbending sem hvetur bæði augað og líkamann til að reika um.

Previous
Previous
14 November

Skúli mennski og hljómsveit

Next
Next
19 November

Magic the Gathering spilakvöld 19. nóvember