Arts Iceland býður til opinnar vinnustofu listakonunnar Costanza Givone í Bryggjusal Edinborgarhússins miðvikudaginn 23. september kl. 19:00.
Botanics of the Body byggir á samtali milli rannsókna á plöntulífi og hreyfingar.
Aðlögunarhæfni, seigla og leiðir plantna til að lifa af verða útgangspunktur að því að kanna hvernig líkaminn getur skapað, í gegnum djúpa hlustun og samtal við umhverfi sitt. Við skoðum einnig átök og togstreitu í plöntulífinu, krafta sem keppa hver við annan, veita mótspyrnu, aðlagast og umbreytast.
Við sækjum innblástur í jóga, Nikolais-tæknina, lífaflfræði Meyerholds, aðferðir Grotowskis og líffræði plantna. Við gefum okkur tíma til að upplifa líkamann sem lifandi lífveru sem er stöðugt að aðlagast umhverfi sínu og bregðast við því.
Vinnustofan er opin og þátttakendur eru hvattir til að koma í þægilegum fötum!
Costanza Givone
Costanza Givone er sviðslistakona, danshöfundur og listrænn stjórnandi sem starfar í Portúgal. Hún er með meistaragráðu í sviðslistum og framhaldsmenntun í samtímadansi frá ESMAE í Porto.
Frá árinu 2012 hefur hún unnið þvert á listgreinar og fléttað saman rödd, hreyfingu og myndlist í verkum sínum.
Árið 2019 stofnaði hún menningarfélagið Fogo Lento – Associação Cultural, þar sem hún starfar sem listrænn stjórnandi. Í listrænum rannsóknum sínum um þessar mundir beinir hún sjónum að tengslum mannsins við aðrar lífverur, einkum plöntur og vistkerfi skóga.
