13. – 31. júlí 2018Einkasýning Kristbergs Ó. Péturssonar; Við.
Hugtakið "við" rúmar okkur öll. Hvort sem við erum einstaklingar, hópar eða þjóðir. Það er hinsvegar tilhneiging til aðgreiningar: Við og hin. Við reisum múra í stað þess að rífa þá.
Ég hugsa stundum um hvort bækur og sjónvarpsefni í æsku hafi innrætt mér fordóma. Þær voru óteljandi kúrekamyndir sem sýndu þjóðarmorð á indíánum og stríðsmyndir þar sem Japanir og Þjóðverjar voru útmálaðir sem hálfgerðar ófreskjur og síðan stráfelldir af góðu gæjunum í hinum ósigrandi bandaríska her. Leikir okkar strákanna voru í þessum anda, byssuleikir eða tindátaleikir. Við áttum heri af tindátum, (eða réttara sagt plastdátum því þeir voru úr plasti) sem við röðuðum upp í fylkingar í hrauninu. Bókmenntir bernskuáranna voru Fimm-bækurnar vinsælu eftir Enid Blyton og þær endurspegluðu sömuleiðis ákveðna tvískiptingu.
Úr Wikipedia:
„Á síðari árum hafa ýmsir gagnrýnt bækur Enid Blyton fyrir viðhorf sem koma fram í þeim, bæði hvað varðar kynþætti, stéttaskiptingu og kynjahlutverk. Þetta kemur fram í orðalagi, staðalímyndum og mörgu öðru. Brotamennirnir eru oft dökkir yfirlitum og útlendingslegir. Helstu ovinir Dodda voru upprunalega svertingjadúkkur en í nýlegum sjónvarpsþáttum koma önnur leikföng í stað þeirra. Stéttaskiptingin miðast líka við breskt samfélag á fyrri hluta 20. aldar. Söguhetjur Enid Blyton eru allar af miðstétt, fólk af lægri stéttum er yfirleitt óheflað og fáfrótt. Á seinni árum hafa útgefendur bóka Enid Blyton stundum gert breytingar á textanum til að draga úr þessum viðhorfum.“
Það er hvorki ætlun mín að deila á á Enid Blyton né kryfja bernskuna. En bernskuminningar mínar kallast á við hugleiðingar um áleitin samfélagsleg málefni, tilhneiginguna til að jaðarsetja framandi hópa og einstaklinga. Útgangspunkturinn í hugleiðingum mínum er að við erum öll á sama báti.
Það er tenging á milli umræddra bóka eftir E.B. og myndraðar á sýningunni. Tengingin er fólgin í bókartitlunum á einfaldan hátt: Orðinu Fimm er skipt út fyrir orðið Við. Dæmi: Fimm á fjöllum uppi verður: Við á fjöllum uppi. Fimm á flótta verður Við á flótta. Og svo framvegis. Þar sem skýringum mínum sleppir er það áhorfandans að túlka og tengja að eigin vitund.
—
Kristbergur stundaði nám við Myndlista og handíðaskóla Íslands á árunum 1979 til 1985. Þaðan var förinni heitið til Hollands þar sem hann stundaði nám við Ríkisakademíuna í Amsterdam 1985 til -88. Hann hefur á ferli sínum haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Hann hefur hlotið starfslaun listamanna og verk eftir hann eru í eigu safna og opinberra stofnana.
Hann hefur unnið verk í ýmsa miðla s.s. grafík, teikningu, olíu- og vatnslitamálun. Nýverið hefur hann að auki fengist við gerð þrívíðra verka og gert tilraunir með samspil skúlptúra og teikninga auk þess að nota ritmál í verkum og birta ljóð á sýningum.
