22. febrúar – 30. mars 2014Einkasýning Höllu Birgisdóttur; Tungl í hjarta: ýmsar birtingamyndir vitfirringar.
Halla Birgisdóttir notar texta og teikningar sem rannsakandi athöfn gerða til þess að reyna að skilja ýmis umhugsunarefni. Verk hennar eru frásagnir og stórum parti af þeim miðlar hún í gegnum myndir.
Með sýningu í Slunkaríki langar Höllu að sýna Ísfirðingum og öðrum gestum safn örsagna sem að hún hefur unnið í að skrásetja með textum og teikningum í gegnum tíðina m.a. á bloggsíðu sinni. Hana langar að koma með frásagnir sínar inn í rými Slunkaríkis og umbreyta því þannig að þegar að gestir ganga inn í rýmið gangi það inn í heim sagnanna.
Í þessu felst að listamaðurinn þarf leyfi til þess að skrifa á veggina í samspili við teikningarnar sem yrði komið fyrir í rýminu. Áferð veggjana er áhugaverð til þess að skrifa á og mun Halla finna teikningunum stað í samspili við timburveggi rýmisins og umgang sýningargesta og gesta nærliggjandi veitingastaðar.
Persónuleg saga Höllu er á sama tíma saga svo margra. Hún tekst á við viðfangsefnið af einlægni og fjallar á opinskáann hátt um ljúfsára atburði í lífi sínu.
