Verkefnastjóri fræðslu og viðburða
Menningarmiðstöðin Edinborg á Ísafirði auglýsir starf verkefnastjóra fræðslu og viðburða.
Megin hlutverk og tilgangur menningarmiðstöðvarinnar er að efla menningu og listir á Vestfjörðum og skapa faglega umgjörð fyrir fjölbreytta menningarstarfsemi.
Starfið er nýtt og fær verkefnastjórinn rík tækifæri til að þróa í samstarfi við framkvæmdastjóra, stjórn og samstarfsaðila. Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni til að ganga til liðs við okkur og taka þátt i fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Helstu viðfangsefni verkefnastjóra:
Umsjón með skipulagi og gerð fræðsludagskrár fyrir börn, ungmenni og fullorðna, m.a. í samstarfi við félagasamtök, hópa og listafólk
Skipulag og framkvæmd viðburða, jafnt tilfallandi og fastra viðburða
Skipulag þátttöku verktaka og annarra samstarfsaðila í viðburða- og fræðslustarfi
Umsjón með bókunum, útleigum og uppsetningu sala og samskipti við viðskiptavini
Tekur þátt í innleiðingu nýrrar stefnu fyrir Edinborgarhúsið ásamt vinnu við uppfærslu heimasíðu og ásýndar
Tekur þátt í markaðssetningu viðburða og dagskrár
Sinnir einnig öðrum verkefnum sem tengjast starfseminni í samstarfi við framkvæmdastjóra
Menntunar og hæfinskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af því að vinna með börnum og ungmennum er kostur
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og í riti
Færni til að rita texta og miðla fræðslu til ólíkra aldurshópa
Tölvufærni og þekking á notkun samskiptamiðla og vefsíðna
Þekking á verkefnisstjórnun og kostnaðaráætlunargerð
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Jákvæðni, þjónustulipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Geta til að vinna undir álagi og sinna fjölbreyttum viðfangsefnum samtímis.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs í 100% starfshlutfall með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 20. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Ingi Björn Guðnason í gegnum netfangið stjorn@edinborg.is.
Tekið er við umsóknum (kynningarbréf og ferilsskrá) á www.alfred.is og í gegnum tölvupósti á stjorn@edinborg.is.
Æskilegt að viðkomandi geti hafð störf sem fyrst.
