Samband English

Áramótaskop Ara Eldjárns

Undanfarin ár hefur Ari Eldjárn komið til okkar í Edinborgarhúsið með svokallaða tilraunasýningu. Þessar sýningar hafa gengið svo vel að nú hefur hann tekið ákvörðun um að koma með fullmótað Áramótaskop, sem sé stærri og enn flottari sýningu! Áramótaskopið fer fram í Edinborgarhúsinu föstudaginn 8. desember kl. 19:00.

Miðasala á TIX.IS

Ari er einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna áhorfenda og vakti mikla athygli. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.

Þetta er í sjöunda sinn sem þessi geysivinsæla sýning Ara er sett á svið en eins og fyrri ár, seldust allar sýningar upp í fyrra. Um 20.000 manns mættu á sýningar víðsvegar um landið til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti í bland við annað efni.

 Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!

 

Staðsetning og tími: Edinborgarsal 8. desember kl. 19:00

© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames